Gestur Guðjónsson

28 febrúar 2006

Snilldargrein

Ég las mikla snilldargrein eftir Bjarna Harðarson í Blaðinu í gær og læt hana flakka hér í leyfisleysi.
DV er óvinsælasta fyrirtæki landsins samkvæmt nýlegri könnun sem sagt var frá í síðustu viku. Þarf engan að undra og raunar ekki að búast við mikilli breytingu í þeim
efnum þó svo að þeir kumpánar Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason hafi verið sendir heim. Eftir sitja á blaði þessu nokkrir alræmdir stéttarbræður sem við íslenskir
blaðamenn hljótum ár og síð að skammast okkur fyrir.

Lítið fer fyrir nýju ritstjórunum á blaði þessu og sennilegast að þeir séu atkvæðalitlir þarna innanborðs. Hitt er dagljóst að Eiríkur Jónsson, Jakob Bjarnar og þeirra líkar ganga þarna lausbeislaðir sem fyrr. Andi Gunnars Smára Egilssonar svífur nú sem fyrr yfir þeim vötnum sem þarna falla fram, mórauð og illa þefjandi.

Skömm blaðamannastéttarinnar

Ég hef verið spurður,- af hverju ég sé að æsa mig yfir slík um smámunum eins og DV? Hvort ég eigi þar einhverra harma að hefna persónulega? Svarið er já. Ég er blaðamaður, búinn að tilheyra þeirri stétt manna í á þriðja áratug og það kemur mér við að innan þessarar stéttar séu óvandaðir menn sem sverta starfsheiður allra blaðamanna. Eftir að ég fyrst gagnrýndi DV menn út af vægast sagt sóðalegum rógburði og lygi um fólk sem býr í Þorlákshöfn, þá hefur það æxlast svo að fjölmargir sem eiga um sárt að binda vegna þessarar blaðaútgáfu hafa haft samband við mig. Sögurnar, harmurinn, tilefnislaus mannorðsmorð og illgirnin, allt er þetta með slík um ólíkindum að engu tali tekur.
Örfáa af þeim sem DV hefur skrifað lygaþvætting um þekki ég persónulega, en til að fyrirbyggja allan misskilning þá get ég varla kallað það að DV hafi skrifað um mig persónulega eða þá sem næst mér standa. Ég tel það ekki með þó að Eiríkur greyið Jónsson hafi nú nýverið reynt að sparka í mig fyrir það að ég skrolli!

Næst mér heggur ef til vill lygafrétt af manni sem sagður er hafa fróað sér á torgi í Kaupmannahöfn. Þar þekki ég vel til fjölskyldu mannsins og veit hve þungbær þessi þvættingur er mörgu af hans góða fólki.
Er skiptandi við þá menn?
Í landinu eru til mörg ódó, illmenni, fantar og fól. Alls konar rógberar, lygamerðir og hafa alltaf verið. Og það er misskilningur að hægt sé að koma í veg fyrir leiðindin af slíku fólki með opinberum lögum.
Það sem við hljótum alltaf að stóla á fyrst og síðast í þessum efnum er siðferðið. Ekki siðferði fanta og vitleysinga heldur siðferði hinna. Siðferði þeirra sem eru í forystu.
Útgáfa DV væri ekki merkileg ef að blað þetta væri gefið út af Eiríki Jónssyni og Jakobi Bjarnar persónulega. En útgáfan sætir tíðindum fyrir það að vera í hendi eins virtasta og stærsta fjölmiðlafyrirtækis landsins, 365 miðla.
Fyrir skömmu gekk reiðialda yfir þjóðina í kjölfar sorpfrétta af virtum rithöfundi og fræðimanni á Ísafirði sem í kjölfar þessara frétta tók eigið líf. Jónas og Mikael voru þá
látnir taka pokann sinn en í sama mund kom yfir forstjóri 365 miðla í sjónvarp og lýsti yfir vonbrigðum með að svo vænir menn hafi þurft að taka pokann sinn. Hann er vonandi aleinn vitiborinna Íslendinga um þessa skoðun.
Eigendur 365 miðla sem jafnframt reka besta banka landsins og langbestu matvörukeðjuna hljóta að velta því fyrir sér hvort eðlilegt sé að maður með jafn sjaldgæfar og ég vil meina siðlausar meiningar leiði þetta stóra og mikla menningarfyrirtæki.
Við sem er um ósátt við DV hljótum að velta því fyrir okkur hvort við getum sóma okkar vegna verslað við þá menn sem eiga og ala hjá sér fól. Og siga því daglega að saklausum borgurum.
Höfundur er ritstjóri Sunnlenska fréttablaðsins

4 Comments:

At 06 mars, 2006 23:09, Anonymous Nafnlaus said...

Sæll Gestur!

Ég er þessi Jakob Bjarnar sem Bjarni nefnir í grein sinni. Nú er náttúrlega ómögulega bannað þér að vera aðdáandi Bjarna. Eða það að finnast þetta snilldargrein. Hins vegar tel ég rétt að vekja athygli þína á því að í þessari grein er að finna ærumeiðingar og atvinnuróg sem varða almenn hegningarlög. Og samkvæmt því sem Hróbjartur Jónatansson segir mér er sá sem dreifir slíkum rógburði að öllum líkindum bótaskyldur.

Ykkur framsóknarmönnum virðist finnast það í góðu lagi að ata aðra menn auri og vísa ég til frægra ummæla flokksbróður þíns Hjálmars Árnasonar þess efnis að við sem störfum á DV séum morðingjar. Sinn er hver smekkurinn. En hitt er að mér finnst það fyrir neðan allar hellur að menn sem vilja taka þátt í stjórnmálavafstri skuli leyfa sér hátterni sem beinlínis varðar við lög. Þannig að ég myndi í þínum sporum athuga minn gang.

Jakob Bjarnar Grétarsson

 
At 07 mars, 2006 08:54, Blogger Gestur Guðjónsson said...

Sæll Jakob
Í þessari grein er að finna ærumeiðingar, það er rétt. Ærumeiðingar ef það væru engar innistæður fyrir fullyrðingunum. Býst ekki við að þú getir fullyrt að það sé enginn fótur fyrir þeim fullyrðingum sem hann heldur fram, að DV hafi farið með sannleikann í einu og öllu, að enginn starfsmaður þess blaðs hafi hótað, ef þú segir ekki eitthvað búum við það til osfrv. Þannig að áður en menn fara að tala um ærumeiðingar held ég að menn þurfi eitthvað að skoða bjálkana í eigin augum.
Ef þú telur þig hafa innistæðu fyrir því að kalla þetta ærumeiðingar er ekkert annað að gera en að kæra Bjarna og þá mig í framhaldinu ef hann fæst dæmdur.
Gestur Guðjónsson

 
At 07 mars, 2006 12:09, Anonymous Nafnlaus said...

Hugmyndir þínar um ærumeiðingar eru furðulegar Gestur.

Í þeirri grein sem þú kýst að birta er ég kallaður ódó, illmenni, fantur og fól, rógberr, lygamörður og þaðan af verra.

Og þú telur það að sönnunarbyrgðin á þeim einkunnum hvíli á mínum herðum? Að ég þurfi að afsanna að ég sé ódó, illmenni, fantur og fól...

Hvurskonar hundalógík er þetta? Nú krefst ég þess á móti að þú finnir þessum alvarlegu ásökunum stað hvað mig varðar, þessum atvinnurógi og ærumeiðingum, eða heitir ómerkingur annars. Og það þýðir ekkert að varpa fram einhverjum dæmalausum almennum hugleiðingum um DV -- þar bera ritstjórar ábyrgð og hafa reyndar þegar axlað hana eftir fádæma múgæsinu þar sem Bjarni Harðarson, sá sem þú hefur í hávegum, kynnti vel undir. Nei, ég krefst þess að þú finnir einhvern þann mann sem heldur því fram að ég sem blaðamaður hafi haft rangt eftir sér. Að ég hafi falsað fréttir. Þetta eru alvarlegar ásakanir sjáðu. Og löngu tímabært að spornað sé við fæti þegar menn fara svo gáleysislega með orð sín -- ekki síst þegar um er að ræða menn sem láta til sín taka í stjórnmálum.

Jakob Bjarnar Grétarsson

 
At 07 mars, 2006 15:44, Blogger Gestur Guðjónsson said...

Sæll Jakob

Ég lít ekki á þig sem ódó eða hvað annað sem Bjarni kallar ónefnda starfsmenn DV. Þekki ekki þannig til einstakra starfsmanna þessa blaðs til að hafa þá skoðun. Ég skil skrif Bjarna um ykkar persónur þannig að ef þið ættuð blaðið væri það litið öðrum augum. Ekkert annað.

En ég fer ekki ofan af því að vera sammála honum um að fyrirbærið DV og þar með þeir ábyrgðarmenn sem bera ábyrgð á skrifum blaðsins hafa oft gerst sekir um að fara passlega vel með staðreyndir. Ég ætla ekki að vera að koma með dæmi um það enda væri það að ýfa upp sár sem eiga að fá frið til að gróa

Gestur Guðjónsson

 

Skrifa ummæli

<< Home